Farsæld í þágu barna

Útskriftaferð 2016 árgangsins

Útskriftaferð Bergs var farin þriðjudaginn 17. maí. Þau eyddu deginum í æðislegu veðri í skálanum í Skorradal.

Vorverkin hafin á Akrasel

Við á Akrasel erum byrjuð á ýmsum vorverkum og finnst börnunum skemmtilegt að fá að hjálpa við hin ýmsu verk. Anney leikskólastjóri byrjaði að stinga upp blómabeðið fyrir utan Tjörn og í leiðinni var grindverkið við blómabeðið tekið niður. En það á að laga. Börnin voru ekki lengi að koma og hjálpa henni. Hérna eru nokkrar myndir frá því þegar Lindir hjálpuðu til við vinnuna um morguninn. Eftir hádegið þá hjálpuðu börnin á Hömrum Anney og kennurunum.

Umbótaáætlun Akrasels komin á heimasíðuna.

Eftir að við á Akraseli fengum skýrsluna frá Menntamálastofnun um Ytra mat á Leikskólanum þó fór starfsfólk og stjórnendur í að vinna að umbótaráætlun. Hluti af starfsmannadegi og starfsmannafundur var notaður í þessa vinnu. Þannig höfðu allir starfsmenn möguleika á að koma með lausnir, hugmyndir og athugasemdir.

Árgangahittingur, 2018 árgangurinn í Akrasel

Miðvikudaginn 27.apríl var árgangahittingur leikskólanna á Akranesi. Hérna eru nokkrar myndir frá árgangahittingnum í Akraseli

Gleðilegt sumar

Jógavika í Akraseli

Vikuna 14.03 til 18.03 var jógavika á Akrasel. Þessa vikuna fóru tvær deildir saman í jóga og nutu samveru með hvor annarri. Ein deild af Hömrum var með einni deild af Lindum. Þessi vika gekk mjög vel og skemmtu börnin sem og kennaranir sér vel. Þessar deildir voru saman í jógavikunni:Lækur og Berg, Tjörn og Gljúfur, Mýri og Klettur.

Vorskólinn í Brekkubæjarskóla 5. apríl til 8.apríl

Dagur leikskólans

Haldið var upp á dag leikskólans sem er á sunnudaginn 6 febrúar.

Rauður dagur á Akrasel

Þann 17. desember var Rauður dagur á Akrasel. Við fengum Eystein álfastrák og Hulda búálf í heimsókn og eftir að leikritinu lauk kom jólasveinninn til okkar. Dansað var í kringum jólatréið með Eysteini, Huldu og jólasveininum við mikla gleði barnanna. Öll börnin fengu síðan mandarínu úr poka jólasveinsins.

Sólblómaleikskólinn Akrasel

Elsta deild Akrasels tekur þátt í sólblómaverkefni SOS barnaþorpanna. Leikskólinn styrkir eitt ákveðið barn í SOS Barnaþorpi um tæp 50.000 á ári. Sólblómaleikskólar fá efni frá SOS Barnaþorpunum þar sem þeim er sagt frá börnum sem búa í SOS Barnaþorpum. Saga þeirra er sögð ásamt því að lönd þeirra eru kynnt, matarmenning o.fl. Áhersla er lögð á að leikskólabörnin geti rætt um hvernig aðstæður SOS barnanna séu líkar/ólíkar þeirra eigin. Leikskólabörnin fræðast þannig um önnur lönd og aðra menningarheima og sjá hversu mikilvægt það er að bera virðingu fyrir öðrum þó svo að lifnaðarhættir og aðstæður séu öðruvísi en þau þekkja sjálf.