Samvinna eftir skilnað (SES )

Félagsráðgjafar velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar bjóða upp á sérhæfða skilnaðarráðgjöf til foreldra barna á aldrinum 0-18 ára, ráðgjöfin kallast SES eða samvinna eftir skilnað.

Ráðgjöfin miðar að því að veita ráðgjöf og stuðning við foreldra í skilnaðarferlinu og því geta foreldrar sem eru að skilja, eða hafa skilið og vilja þiggja stuðning og ráðgjöf sett sig í samband við félagsráðgjafa á velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstaðar.

Meginmarkmið SES verkefnisins er að vernda hagsmuni barnsins í ferlinu sem og að bæta andlega og líkamlega líðan foreldra og barns. Í gegnum verkefnið öðlast foreldrar færni í að takast á við óvæntar uppákomur tengdar skilnaðinum og einnig auka skilning sinn á viðbrögðum barna sinna við honum.

Hér er hægt er að sækja um ráðgjöf hjá SES ráðgjöfum í íbúagátt Akraneskaupstaðar.

Frekari upplýsingar um SES verkefnið má finna á samvinnaeftirskilnad.is