- Starfsfólk
- Viðburðir
- Klettur
- Berg
- Gljúfur
- Mýri
- Tjörn
- Lækur
- Starfið
- Sagan okkar
- Farsæld í þágu barna
Bangsinn Blær og Vinátta

Vinátta er forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti og er ætlað leikskólum og fyrstu bekkjum grunnskóla, verkefnið er þrískipt eftir aldri barnanna. Námsefnið byggir á áströlsku efni, Better Buddis og er notað í mörgum löndum. Hér á landi er það Barnaheill – Save the children á Íslandi sem framleiðir efnið og gefur það út. Efnið er danskt að uppruna og heitir á frummáli „Fri for mobberi“. Í þróunarvinnu við verkefnið hefur Barnasáttmáli Sameinuðuþjóðanna verið hafður að leiðarljósi.
Bangsinn Blær er táknmynd verkefnisins. Vináttuverkefnið Blær er forvarnarverkefni, meginmarkmið þess er að stuðla að góðum skólabrag, jákvæðum samskiptum og viðhorfum og koma þannig í veg fyrir einelti. Með því að halda uppi mikilvægi vináttu þá hjálpumst við að við að tryggja börnum umhverfi þar sem einelti nær ekki að þrífast. Grundvöllur þess að vel takist til er þátttaka allra í leikskólanum; barna, starfsfólks og foreldra.
Í Akraseli leggjum við áherslu á að kenna börnunum okkar að vera góður félagi og sýna vináttu, umhyggju, virðingu, hjálpsemi og hugrekki
Verkefninu fylgja ýmis námsgögn og með klípusögum, umræðum, nuddi, söng og leikjum læra börnin um gildi vináttu með aðstoð frá Blæ. Hvert og eitt barn fær lítinn Blæ bangsa. Bangsarnir eru eign barnanna en þeir eru geymdir í leikskólanum þar til börnin hafa útskrifast og eru hugsaðir sem hluti af þessu verkefni. Börnin föndra hús fyrir bangsann sinn þannig að allir bangsarnir eiga sitt „hús“ á deild barnanna.
Hugmyndafræðin endurspeglast í eftirfarandi fjórum gildum:
Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við aðra af virðingu.
Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og að virða mismunandi hátterni annarra.
Að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra.
Að þora að láta til sín heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti.