Heilsueflandi skólastarf

Leikskólinn Akrasel er heilsueflandi leikskóli. 

Á heimasíðu Landlæknis stendur eftirfarandi

,,Heilsueflandi leikskóla á vegum embættis landlæknis er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu og gera hana að hluta af daglegu starfi leikskólans.

Í Aðalnámskrá leikskóla frá 2011 eru heilbrigði og velferð skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar sem leikskólar eiga að hafa að leiðarljósi og innleiða í öllu sínu starfi.

Mikill samhljómur er með starfi Heilsueflandi leikskóla og grunnþættinum um heilbrigði og velferð. Heilsueflandi leikskóli mun því nýtast leikskólum sem verkfæri til að innleiða grunnþáttinn heilbrigði og velferð".

Nánari upplýsingar er hægt að afla sér hérna á heimasíðu Landlæknis