Vinnudagur foreldrafélagsins

Á laugardaginn síðastliðinn stóð foreldrafélagið fyrir vinnudegi í garðinum okkar. Foreldrar mættu og unnu hin ýmis verk fyrir veturinn. Það var borið á bekki og leiktæki, hreinsuð beð, kantskorið og önnur smáverkefni sem hafa setið á hakanum.

Það er óhætt að segja að margar hendur vinna létt verk og með góðri samvinnu tókst að gera heilmikið á stuttum tíma. Það var gaman að sjá þá foreldra sem höfðu tök á að koma og leggja sitt af mörkum fyrir börnin okkar en garðurinn er mikilvægur hluti af leikskólastarfinu og fallegt og vel um hirt umhverfi skapar notalegan vettvang fyrir börnin til að leika, kanna og njóta útiverunnar.

Hugmynd kom upp hjá foreldrafélaginu að gera þetta að föstum lið og stefna á að halda svona vinnudag einu sinni til tvisvar á ári. 

Kærar þakkir til foreldrafélagsins og allra þeirra sem mættu og lögðu hönd á plóg. Framlag ykkar skiptir máli.