Sumarhátíð í Akraseli

Þriðjudaginn 10. júní var sumarhátíð í Akraseli haldin. 

Um morguninn var settur upp hoppukastali fyrir börnin á leikskólanum.

Klukkan 14.00 var kveikt upp í grillinu og grillaðar pylsur fyrir börnin, starfsfólk og gesti. 

Klukkan 15.00 kom Leikhópurinn Lotta og sýndi leikritið Hans og Gréta.