Samstarfsverkefni við tónlistarskólann á Akranesi

Árgangur 2013 er í samstarsverkefni við tónlistarskólann á Akranesi. Við fengum sendan lista yfir lög sem við æfðum okkur að syngja. Við fórum svo í söngstund í tónlistarskólann þar sem við sungum saman með undirleik hljóðfæra ásamt því að við fengum að prófa að spila á trommur og hristur. Við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni og hlakkar okkur til að sjá hvernig þetta þróast.