Nýtt námsefni í Akrasel

Við í Akraseli höfum nýlega fengið til okkar nýtt og spennandi námsefni sem ber heitið Koffortið hennar Korku.
Efnið er ætlað til að styðja við samtöl við börnin um tilfinningar, sorg, missi, dauðann og minningar á nærgætinn og aldurssvarandi hátt. Koffortið hennar Korku er ekki aðeins efni sem við notum þegar sorg eða missir kemur upp heldur líka verkfæri til að byggja upp tilfinningalæsi, traust og tilfinningalegt öryggi í daglegu starfi og því getur efnið verið stuðningur ef upp koma erfiðar aðstæður í lífi barns. 
Tilgangurinn með efninu er að skapa öruggt rými þar sem börn fá tækifæri til að tjá sig, spyrja spurninga, vinna úr tilfinningum sínum og að þau átti sig á því að allar tilfinningar eru eðlilegar og mikilvægar.
Koffortið inniheldur meðal annars barnabækur, umræðu- og tilfinningaspjöld, Korkubangsann, sorgarskikkju og hugmyndir að verkefnum sem starfsfólk getur nýtt í starfinu með börnunum.

Tengingin við Heillaspor

Innleiðing Koffortsins hennar Korku fellur vel að þeirri vinnu sem við erum að hefja með Heillasporum í leikskólanum.
Heillaspor er heildræn nálgun sem leggur áherslu á vellíðan, jákvæð tengsl, tilfinningalegt öryggi og að mæta þörfum hvers barns. Þar er horft á barnið í heild sinni og mikilvægi þess að hvert barn upplifi sig öruggt, sé hluti af hópnum og fái að þroskast á eigin forsendum. Með Koffortinu hennar Korku fáum við enn fleiri verkfæri til að vinna að þessum áherslum. 
 Það er mikilvægt að börnin finni að þau geti leitað til okkar fullorðnu þegar eitthvað bjátar á og að við séum til staðar til að styðja þau í gegnum bæði gleði og erfiðari stundir. Við í Akraseli leggjum áherslu á að hlusta á börnin, taka upplifun þeirra alvarlega og mæta þeim af hlýju, virðingu og skilningi.
Það er einnig gaman að finna námsefni sem er hægt að flétta inn í daglegt starf leikskólans og nýta það með börnunum á fjölbreyttan hátt. Efnið verður bæði nýtt í almennu starfi til að ræða tilfinningar og samskipti, en einnig þegar aðstæður kalla á frekari stuðning og samtöl en þá er samstarf á milli heimilis og skóla lykilþáttur. 

Við hlökkum til að vinna áfram að þessum mikilvægu áherslum og efla þannig vellíðan, öryggi og farsæld allra barna í leikskólanum okkar.