Innleiðing Heillaspora

Leikskólinn Akrasel hefur hafið innleiðingu Heillaspora (e. Nurture) í samvinnu við
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Heillaspor er heildræn og tengslamiðuð nálgun í
skóla- og frístundastarfi sem miðar að því að efla velferð, öryggi, tengsl og virka þátttöku
allra barna í skólasamfélaginu.


Í Heillasporum er gengið út frá því að öryggi, góð tengsl og tilfinningin fyrir því að tilheyra
séu mikilvægar forsendur vellíðan, þroska og náms. Nálgunin byggir meðal annars á
ríkulegri þekkingu úr tengsla-, þroska- og áfallafræðum og leggur áherslu á að
umhverfið, samskipti og starfshættir taki mið af þroska og þörfum barna.


Innleiðing Heillaspora snýst því ekki um sérstakt úrræði fyrir afmarkaðan hóp barna
heldur um að þróa skólasamfélagið í heild. Starfsfólk rýnir saman í eigin starfshætti og
skoðar meðal annars hvernig hægt er að efla:


• öryggi, tengsl og tilfinningu barna fyrir því að tilheyra
• inngildandi og styðjandi skólamenningu
• rödd og virka þátttöku barna
• skilning á líðan, hegðun og þörfum barna
• Sameiginleg, tengslamiðuð vinnubrögð starfsfólks

Innleiðing Heillaspora er þróunarferli sem tekur tíma. Á næstu mánuðum mun starfsfólk
Akrasels vinna saman að fræðslu, ígrundun og markvissri þróun starfshátta eftir leiðandi
vörðum Heillaspora. Markmiðið er að festa í sessi menningu og vinnubrögð sem styðja
við öryggi, vellíðan, þroska og nám allra barna.


Foreldrar og forsjáraðilar eru mikilvægur hluti skólasamfélagsins og munum við óska
eftir þátttöku foreldra við öflun gagna, m.a. með rafrænum spurningalista sem sendur
verður út í Völu. Þá munum við leitast við að miðla upplýsingum um verkefnið og
framvindu þess eftir því sem innleiðingunni vindur fram.


Nánari upplýsingar um Heillaspor má finna á vef Miðstöðvar menntunar og
skólaþjónustu:
https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/heillaspor