Fánadagur heimsmarkmiða SÞ um sjálfbæra þróun 25.september 2023.

UN Global Compact á Íslandi, í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi með stuðningi forsætisráðuneytins og utanríkisráðuneytisins, stendur fyrir fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn á Íslandi. Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, skólar og sveitarfélög um allan heim, sýni skuldbindingu sína við heimsmarkmiðin og aðgerðirnar sem þau krefjast. Þann 25. september 2023 eru átta ár liðin frá því að heimsmarkmið SÞ um sjálfbæra þróun voru samþykkt. Heimsmarkmiðin fela í sér ákall eftir alþjóðlegu samstarfi um að efla velferð og gera heiminn að betri stað fyrir árið 2030. Þótt athyglisverður árangur hafi náðst á ýmsum sviðum þá erum við þegar hálfnuð á vegferðinni til 2030 og ljóst að aukinn slagkraft þarf í aðgerðir til að ná þeim árangri sem að var stefnt.

 

Fánaherferð UN Global Compact hófst í Hollandi árið 2019 og hafa vinsældir framtaksins farið ört vaxandi. Í ár taka hundruð fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka, Fánadagur heimsmarkmiða Sþ um sjálfbæra þróun 25. september 2023 #TogetherForTheSDGs skóla og sveitarfélaga þátt í fánadeginum um allan heim undir heitinu Saman fyrir heimsmarkmiðin #TogetherForTheSDGs