Dagur leikskólans 6. febrúar

Haldið var hátíðlega upp á Dag leikskólans í Akraseli þriðjudaginn 6. febrúar. 

Í tilefni dagsins höfðu öll börn gert hvert sitt hljóðfæri, hristur og trommur til að spila á í skrúðgöngunni. 

Börn og starfsfólk fóru í skrúðgöngu , sungin voru leikskólalög meðan gengið var hringinn í kringum leikskólann og spilað á nýju hljóðfærin sín.

Hérna eru nokkrar myndir frá skrúðgöngunni