Dagur leikskólans

Í dag héldum við í Akraseli upp á dag leikskólans sem er á sunnudaginn 6 febrúar. Í tilefni dagsins mætti hver deild í regnbogalit og fórum við svo öll saman í skrúðgöngu með hljóðfæri sem við erum búin að vera að föndra alla vikuna. Deildarnar enduðu svo á því að syngja skólasöng Akrasels og lagið Í leikskóla er gaman. Myndband af söngnum má sjá hér.