Árbækur verða að mánaðarlegum fréttum af starfi

Við höfum notast við Árbækur síðustu ár hér á Akraseli. í ár byrjuðum við að nota heimasíðuna okkar meira til að upplýsa foreldra um starfið á deildum barnanna.
Núna munum við ekki senda frá okkur Árbækur lengur. Hægt er að sjá hvern mánuð fyrir sig undir deild ykkar barns - starfið.

Sway skjölin sem vísað er í undir lok hvers mánaðar gefa mjög góða innsýn í það frábæra starf sem unnið er á deildum leikskólans. 

Hvetjum við ykkur að skoða vel deild barnsins ykkar og upplýsingarnar um starfið sem þar fer fram. 

Hægt er að vista mynd af ykkar barni af Sway skjalinu í ykkar tölvu.