Afrakstur ræktunar í Akraseli

Í Akraseli ræktum við meðal annars paprikufræ að vori, börnin fá síðan að fara heim með blómið. Við fengum þessa skemmtilegu mynd senda frá foreldri en þau hafa passað mjög vel upp á að vökva og hafa þær í birtu. Stærra blómið Berglindar og er 2ja ára og það minna er eins árs og kom það heim með yngri bróðir Berglindar í fyrra.

Stærra blómið hefur gefið af sér um 20 paprikur en það minna 12 paprikur. Gaman að sjá hve árangurinn er þegar foreldrar og börn halda áfram að sinna plöntunum þegar þau koma heim. 

Gaman að sjá hve stórar plönturnar eru með henni Berglindi á Kletti.  

(Mynd birt með leyfi foreldra Berglindar)