Samsöngur í september
Góða dag
Góðan dag kæra jörð,
góðan dag kæra sól,
góðan dag kæra tré,
og blómin mín öll.
Sæl fiðrildin mín
og lóan svo fín.
Góðan dag fyrir þig,
góðan dag fyrir mig.
Dagavísa og mánaðarvísa
Sunnudagur, mánudagur, þriðjudagur, miðvikudagur, fimmtudagur,
föstudagur og laugardagur,
og þá er vikan búin.
Janúar,
febrúar
mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst,
september,
október,
nóvember og desember.
Dúkkan hennar Dóru
Dúkkan hennar Dóru var með sótt, sótt, sótt,
hún hringdi og sagði lækni að koma fljótt, fljótt, fljótt.
Læknirinn kom þá með sína tösku og sinn hatt
hann bankaði á hurðina: Ra, ta, ta, ta, tatt!
Hann skoðaði dúkkuna og hristi sinn haus:
Hún skal strax í rúmið og ekkert raus!
Hann skrifaði á miða hvaða pillu hún skyldi fá:
Ég kem aftur á morgun, ef hún er enn veik þá.
Haustvísa
Hvert var horfið laufið
sem var grænt í gær?
Þótt ég um það spyrji
verð ég engu nær.
Blöðin grænu hafa vistnað,
orðin gul og rauð.
Ef ég horfi miklu lengur
verður hríslan auð.
Ég heyri þrumur
:,: Ég heyri þrumur :,:
:,: Heyrir þú :,:
:,: Droparnir detta :,:
:,: Ég verð gegnblautur :,:
Út um mó, inn í skóg
Út um mó, inn í skóg,
upp í hlíð í grænni tó.
Þar sem litlu berin lyngi vaxa á,
tína, tína, tína má.
Tína þá berjablá,
börn í lautu til og frá.
Þar sem litlu berin lyngi vaxa á,
tína, tína, tína má.
Skýin
Við skýin felum ekki sólina af illgirni
(klapp, klapp, klapp)
Við skýin erum bara að horfa á leiki mannanna
(klapp, klapp, klapp)
Við skýin sjáum ykkur hlaupa-oouuúúííh!
Í rokinu!
Klædd gulum, rauðum, grænum og bláum regnkápum.
Eins og regnbogi meistarans,
regnbogi meistarans,
við skýin erum bara grá, bara grá,
á morgun kemur sólin,
hvað verður um skýin þá.
Berjaför
(Lag: Gamli Nói)
Litli Siggi, litla Sigga
löbbuðu út í mó.
Bæði ber að tína
í berjafötu sína
það var gaman, það var gaman.
Hopp og hæ og hó.
Litli Siggi, litla Siggi
litla þú fann.
Blessuð berin ljúfu
byrgðu alla þúfu.
Eitt af öðru, eitt af öðru
upp í munninn rann.
Litla Sigga, litla Sigga
lítinn bolla sá.
En sá litaljóminn,
litlu fögru blómin.
Þau ég tíni, þau ég tíni,
þau skal mamma fá.
Heim þau gengu, heim þau gengu
heldur kát og rjóð
Buðu ber að smakka,
börnum allir þakka.
Allir segja, allir segja;
„ögn eru berin góð“
Ferskeytlur
Afi minn og amma mín
úti á Bakka búa.
Þau eru bæði sæt og fín,
þangað vil ég fljúga.
Fljúga hvítu fiðrildin
fyrir utan glugga.
Þarna siglir einhver inn
ofurlítil dugga.
Sigga litla systir mín
situr úti´í götu.
Er að mjólka ána sín
í ofurlitla fötu.
Afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suður á bæi,
sækja bæði sykur og brauð,
sitt af hvoru tagi.
Mamma gef mér rós í hárið á mér
Ó mamma gef mér rós í hárið á mér,
tveir litlir strákar eru skotnir í mér.
Annar er blindur og hinn ekkert sér.
Ó mamma gef mér rós í hárið á mér.
Þegiðu stelpa þú færð enga rós,
farðu heldur með henni Gunnu út í fjós.
Þar eru kálfar og þar eru kýr,
þar eru fötur til að mjólka í.
Mér finnst rigningin góð
SSSól
Húsið er að gráta alveg eins og ég.
Da-ra-ra-ra-ra, o-ó
Það eru tár ár rúðunni
sem leka svo niður veggina.
Gæsin flýgur á rúðunni,
eða er hún að fljúga á auganu á mér?
Ætli húsið geti látið sig dreyma,
ætli það fái martraðir?
Hárið á mér er ljóst, þakið á húsinu er grænt,
ég Íslendingur, það Grænlendingur.
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó
Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí.
Við heyrðum í gæsunum og regninu.
Það var í öðru húsi, það var í öðru húsi
Það var í öðru húsi, það á að flytja húsið í vor.
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó