Sérkennsla
Við leikskólann er starfandi sérkennslustjóri. Hlutverk sérkennslustjóra er að leiðbeina kennurum og foreldrum og halda utan um þau börn sem einhverra hluta vegna þurfa sérstuðning. Hann skipuleggur fundi ásamt kennurum, foreldrum og sérfræðingum. Einnig getur hann gert formlega athugun á þroska barnsins í skólanum með viðeigandi þroskaprófum eða matstækjum. Sú vinna fer fram með samþykki og í samvinnu við foreldra. Ef grunur vaknar um einhver þroskafrávik hjá barni ber kennurum barnsins að hlutast til um málið. Þetta á einnig við ef kennarar telja að félagslegar aðstæður barns hamli að einhverju leyti þroskamöguleikum þess.
Sérkennslustjóri er Sigurður Sigurjónsson
sigurdur.sigurjonsson (hjá) akranes.is
sími 433 1262
Sérfræðiráðgjöf við leikskólann
Við höfum kost á að kalla inn talkennara, iðjuþjálfa og sálfræðing. Hafi foreldrar einhverjar áhyggjur af fráviki í þroska barnsins s.s. í máli, hreyfingu eða öðru eiga þeir kost á því að fá þessa þjónustu fyrir barn sitt í gegnum leikskólann. Því fyrr sem gripið er inn í því betur stendur barnið sig í áframhaldandi námi.