ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Um skólann :: Leikskólinn
Prenta vefsíðu

Um leikskólann

Leikskólastarfið byggist á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla sem er lögfest námskrá allra leikskóla og Skólanámskrá Akrasels (sem er í vinnslu). Leikskóli er uppeldis- og menntastofnun þar sem börn þroskast og læra í gegnum leik. Ársáætlun byggir á þessum grunni.

Markmið Akrasels eru:

Að barnið:

tileinki sér þá hæfni sem það krefst að takast á við sjálfan sig og lífið í samskiptum við aðra

  • læri að takast á við kröfur og áskoranir daglegs lífs
  • beri virðingu fyrir sjálfum sér og umhverfi sínu
  • öðlist hæfni í að tjá sig og afla sér þekkingar

 

Börnin eru að læra og æfa sig allan daginn. Við viljum leggja áherslu á virðingu, nálægð, hlýju og umhyggju sem hluta af uppeldisstarfinu.

Umhverfismennt

Markmið leikskólans eru að börn og starfsfólk fái notið náttúrunnar og upplifi af eigin raun og læra að njóta hennar sér til gleði og aukins þroska. Umhverfismenntun samtvinnast við endurvinnslu og umhyggju fyrir umhverfi okkar sem felst m.a. í flokkun og endurnýtingu.

Markmið og leiðir.

Markmið leikskólans Akrasels er að umhverfismennt verði eðlilegur þáttur í öllu leikskólastarfi og börn, foreldrar og starfsfólk læri að njóta og virða náttúruna til aukins náms og þroska.

Markmið leikskólans Akrasels með umhverfismennt er :

  • Að njóta náttúrunnar í leik og kennslu
  • Að ganga um náttúru okkar af virðingu
  • Að flokka úrgang og pappír (endurnýta)
  • Að nota umhverfisvænar hreinlætisvörur
  • Að safna lífrænum úrgangi (molta)
  • Að rækta grænmeti og plöntur í garðinum
  • Að spara raforku og vatn eins og kostur er

Leiðir okkar að settum markmiðum er með góðri kennslu í upphafi leikskólastarfsins til handa starfsfólki, þannig að starfsfólk verði meðvitað um stefnu skólans strax í upphafi. Áherslan verður á að börn upplifi náttúruna, njóti hennar og tengist eins vel og kostur er. Í aðalnámskrá leikskóla er ætlast til að börn fái að upplifa og njóta en þar segir:

„Lífsafkoma mannsins, líf hans og heilsa er háð náttúrunni og

náttúruöflunum. Þekking á náttúrunni og fyrirbærum hennar

er því manninum lífsnauðsynleg. Auk þess er náttúran stöðugt

undrunarefni. Barn þarf að kynnast fjölbreytileika náttúrunnar,

komast í lifandi tengsl við hana og njóta hennar. Opna þarf

augu barns fyrir fegurð náttúrunnar og vekja virðingu fyrir

henni og ábyrgðarkennd. Reynsla barns af náttúrunni fléttast

iðulega inn í leik þess og myndsköpun.“

 (Aðalnámskrá leikskóla 1999)

 

Starfsfólk

Við skólann starfa átta leikskólakennarar í 7,70% stöðum að meðtöldum stjórnendum. Í upphafi var lögð áhersla á að fá fólk til starfa sem sýndi stefnu og markmiðum leikskólans áhuga. Vel hefur tekist til að því sem komið er. Heildar stöðugildi eru 24,5 eftir áramót 2009.

Sérstuðningur

Sigurður Sigurjónsson aðstoðarleikskólastjóri hefur yfirumsjón með sérkennslu og stuðningi í leikskólanum. Margrét sinnir samskiptum við sérfræðinga og foreldra ásamt því að sinna ráðgjöf og eftirfylgd inn á deildir leikskólans.

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is