ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Um skólann :: Aðalnámskrá leikskóla
Prenta vefsíðu

Aðalnámskrá Leikskóla

Menntamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á grundvelli laga um viðkomandi skólastig. Aðalnámskrár hafa ígildi reglugerðar og í þeim er kveðið nánar á um útfærslu laga og reglugerða. Þær kveða m.a. á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs, kennsluskipan og viðmið um námskröfur og námsframvindu. Öllum skólum er skylt að gefa út skólanámskrá. Á skólaárinu 2011 - 2012 mun Akrasel vinna að sinni skólanámskra í samræmi við nýja aðalnámskrá.

Í nýrri aðalnámskrá birtist ný menntastefna sem hefur það meginmarkmið að rækta með markvissum hætti þá þekkingu, leikni og viðhorf sem styrkir getu einstaklinga í framtíðinni til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í jafnréttis- og lýðræðissamfélagi. Kjarni menntastefnunnar er settur saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun.

Í aðalnámskrá er lögð áhersla á lýðræði og jafnrétti og litið svo á að börnin séu fullgildir þáttakendur í samfélagi leikskólans. Þau eiga að fá tækifæri til að koma að lýðræðislegum ákvörðunum sem varða leikskólastarfið sjálft. Leikskólinn er jafnframt mikilvægur vettvangur til að jafna uppeldisaðstæður barna. Lögð er áhersla á að kennarar og stjórnendur í leikskólum fái svigrúm til að þróa leikskólastarfið á faglegan og skapandi hátt. Námssvið leikskólans eru læsi og samskipti, heilbrigði og vellíðan, sjálfbærni og vísindi, sköpun og menning,

 

Hér er hægt að nálgast aðalnámskrá leikskóla.

 

 

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is