ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera

Leikskólinn Akrasel

Leikskólinn Akrasel er nýr leikskóli sem opnaði 8. ágúst 2008. Fullkláraður verður leikskólinn 6 deilda og barnafjöldinn um 150 talsins. Í fyrri áfanga í ágúst voru opnaðar 3 deildir, salur og starfsmannarými. Salurinn var tekinn undir fjórðu deildina til bráðabyrgða þar til annar hluti skólans yrði tilbúin. Í janúar 2009 var svo annar áfangi leikskólans tekin í notkun.  Þá fluttu börnin úr salnum yfir á 2 deildir í seinni áfanga hússins. 

Í leikskólanum eru 6 deildir aldursskiptar (í dag eru starfandi 5 deildir). Deildarheitin Gljúfur, Klettur, Berg, Lækur, Mýri og Tjörn eru tekin úr náttúrunni til vísunar í nafnið okkar Akrasel.

Akrasels nafnið er þjált, gamalt og gott. Í Víðigerði stóð leikskóli sem bar nafnið en honum var lokað þegar leikskólinn Teigasel tók til starfa 1998. Okkur finnst nafnið við hæfi þar sem það vísar í Akrafjallið okkar og akurinn. Við erum með óplægðan akur, börnin munu dvelja á mótunarárum sínum í leikskólanum. 

Akrasel leggur áherslu á umhverfismennt, jóga og hollt mataræði.

Kjörorð Akrasels eru: Náttúra - Næring - Nærvera 

 

Nöfn á stofum á Akraseli

Hamrar - eldri börn

Gljúfur 

Berg

Klettur

Brekka - sérkennsluherbergi

Foss - skúringarkompa

 

Lindir - yngri börn

Lækur

Mýri

Tjörn - á eftir að opna

Hóll - sérkennsluherbergi

Á - skúringarkompa

 

Gjá - miðrými

Lundur - Anney

Fell - Sigurður

Gil - eldhús

Laut - kaffistofa

Þúfa - undirbúningur

Dalur - salurinn

Fjara - leikfangageymsla

Hellir - starfsmannainngangur

Fljót - þvottahús

 

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is