Sveppir
Sveppir eru dularfullar plöntur og eiginlega þarf sveppatínslumaðurinn að komast í andlega snertingu við sveppina. Sveppir vaxa ekki bara sí svona heldur í sambýli við annan gróður. Sveppir með svampbotn þykja besti matsveppir hér á landi. Lerki- og furusveppir eru auðfundnastir og áhættuminnstir fyrir byrjendur og auðvelt að þekkja vaxtarstaði þeirra. Þegar nóg er af sveppum má henda stilk og svampbotni og nýta aðeins það besta. Steikið ferska í smjöri eða hafið í sósur og súpur.