Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Við í Akraseli ætlum að halda upp á þennan dag og hafa regnbogadag. Hver deild hefur fengið ákveðin lit fyrir þennan dag.
Mýri: Gulur
Tjörn: Appelsínugulur
Klettur: Grænn
Gljúfur: Rauður
Berg: Blár
Utan deilda: Fjólublár
Dagskrá dagsins:
Við ætlum að byrja daginn á því að fara í skrúðgöngu að ráðhúsinu 9:30, ásamt leikskólum á Akranesi, og þar ætlum við að syngja tvö lög og afhenda bæjarstjóranum plakat sem er gefið út í tilefni dagsins. Eftir samveruna er arkað heim í söngsamveru og þar ætlum við að mynda regnbogann. Eftir hádegi verður leikur og sprell allan daginn.