Jurtatínsla
Á vorin er gott að safna jurtum í te og seyði. Á sumrin má búa til úr þeim olíur, tinktúrur, krem, ilmsápur, jurtapúða og augnhlífar.
Eins má leyfa jurtunum að státa sínu fegursta ósnertum og ljósmynda þær, teikna þær og merkja inn vaxtarstaði. Það má yrkja um þær ljóð og það er afar gefandi að hugleiða á jurtirnar og biðja þær að setja sér hvernig sambandi þeirra við umhverfið og stjörnurnar sé háttað. Svo má gefa þeim vatn og næringu og syngja fyrir þær.