Foreldraráð leikskóla
Samkvæmt lögum um leikskóla 2008, skal kosið í foreldraráð í september á hverju ári, til eins árs í senn. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4.gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir er varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfi.