Foreldrafundur 10.09.2009
Allar almennar upplýsingar eru á heimasíðunni okkar. Einnig er velkomið að leita til starfsfólks eftir frekari upplýsingum.
Nú er liðið ár frá opnun skólans, fyrsta starfsárið hefur verið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt. Áherslur okkar í Jóga og umhverfismennt hafa gengið vonum framar. Það er gott að vera með þessar áherslur í niðurskurði og erfiðu árferði.
Farið yfir praktísk atriði
· Ekki hafa bíla í gangi fyrir utan leikskólann
· Alltaf að loka hliðum inn á leikskólalóðina
· Merkja fatnað barnanna, þá eru meiri líkur á að þau komist til skila
· Mikilvægt að börn mæti í fötum sem þola vinnu t.d. með liti, lím og skæri. Ekki hafa börnin í fötum sem ykkur er annt um.
· Myndir og nöfn á öllum starfsmönnum fyrir ofan speglana í fataherbergjum, einnig eru myndir af starfsmönnum hverrar deildar fyrir framan hverja deild
· Leikskólinn opnar 7.30 og honum er lokað 17.00 og eru foreldrar beðnir um að virða opnunartíma, starfsfólk er ráðið til starfa eins og seldir tímar segja til um. Við opnum og lokum á Læk og Kletti þau börn sem eru í vistun til kl. 17.00 fara fram með starfsfólki og klæðir sig í til að vera tilbúin kl. 17.00
· Lokunardagar og viðburðir eru á heimasíðu undir skóladagatal
· Foreldraviðtöl eru í afmælismánuðum barnsins en það má alltaf biðja um fund með deildastjóra.
· Afmæli: þegar börnin eiga afmæli þá eru þau stjörnur dagsins, saga þeirra lesin og fáni dregin að húni. Þau koma ekki með neitt að heiman nema sögu um sig.
Þess má geta að Ragnar Már hafði samband við mig eftir fyrirspurnir foreldra um gönguljós við leikskólann, hann sagði að það væri veriðað ganga frá pöntun um götuljós og væntanlega yrði farið í einhverjar bráðabyrgða lausnir þangað til ljósin koma til landsins. Við fögnum því.
Í Akraseli er annarsvegar foreldraráð og hinsvegar foreldrafélag. Foreldrafélag starfar samkvæmt lögum um leikskóla. Í foreldraráði eru þrír foreldrar. Foreldrafélagið er skemmti og atburðafélag sem stendur fyrir ýmsum uppákomum. Gjaldið er 3000,-kr. á ári fyrir fjölskyldu. Í foreldrafélaginu eru 10 fulltrúar. Tveir af hverri deild.
Við hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur ef það er eitthvað sem þið eruð í vafa með í sambandi við leikskólann og leikskóladvöl barna ykkar.