ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Foreldrar :: Foreldrafélag :: Lög foreldrafélagsins
Prenta vefsíðu

Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla 1999, skal starfa foreldrafélag við hvern leikskóla og haldnir fundir reglulega.

Markmið foreldrafélaga er að efla tengsl foreldra og starfsmanna í starfi leikskóla og tryggja velferð barnanna sem best.

Lög foreldrafélagsins og eru:

1. grein
Félagið heitir “Foreldrafélag Akasels” og eru félagar, allir foreldrar og forráðamenn barna í Akraseli.

2. grein
Félagið er til heimilis að Ketilsflöt 2, Akranesi

3. grein
Markmið félagsins er að:
- efla samstarf heimilis og leikskóla
- koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi leikskólamál
- efla kynni foreldra innbyrðis og við starfsmenn leikskólans 
- koma á umræðu- og fræðslufundum um uppeldis- og skólamál í samráði við leikskólann
- taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög og samtök foreldra
- tryggja sem besta velferð barna í leikskólanum

4. grein
Í stjórn félagsins skulu vera a.m.k. 1 fulltrúi frá hverri deild, auk fulltrúa starfsmanna og leikskólastjóri. Miðað er við að hver fulltrúi sitji í stjórn í 2 ár.

5. grein
Á fyrsta fundi vetrar skal stjórn skipta með sér verkum. Skipa skal formann, gjaldkera og ritara.

6. grein
Aðalfundur skal boðaður með minnst viku fyrirvara á bilinu 1. september til 15. október hvert ár. (aðalfundur getur verið boðaður með almennum haust foreldrafundi)

7. grein
Stjórn félagsins sér um að innheimta krakkasjóð einu sinni á ári. Séu systkini skal borga ½ gjald umfram 1 barn.

8. grein
Sjóðnum er ætlað að standa straum af ýmsum uppákomum eins og leiksýningum, sumarhátíð,vorferð og útskriftaferð.  Einnig er sjóðurinn ætlaður til gjafakaupa fyrir leikskólann ef efni standa til.

9. grein
Meðal verkefna sem foreldrafélagið mun standa fyrir og eða standa straum af, eru uppákomur eins og t.d. aðventustund, leiksýning, jólatrésskemmtun og sumarhátíð.  Ennfremur mun stefnan vera að félagið, bæði eitt og sér og í samvinnu við önnur foreldrafélög, standa fyrir fyrirlestrum ætluðum foreldrum og starfsfólki.

10. grein
Fundir skulu haldnir eigi sjaldnar en annan hvern mánuð og skulu formaður og leikskólastjóri sjá um að ákveða og tilkynna þá.

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is