ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Foreldrar :: Foreldrafélag :: Fundargerðir
Prenta vefsíðu

Fundur foreldrafélags Akrasels 28.nóvember 2011

Mættir: Sigga Dísa, Arndís, Gugga, Hrönn, Þórný, Kristín, Rósa Björk. Frá leikskóla: Anney og Sigurður.

Dagskrá:

  • Endanleg ákvörðun um jólaföndur, málaðar pappakeilur og lok sem hægt er aðhengja upp.

  • Allir settir í verkefni og hengdir upp miðar til að fá fólk til að hjálpa til við frágang.

  • Rætt um hlutverk foreldrafélags

  • Umræða um lit á leikskólagöllum, ljósi liturinn er skítsæll. Hugmynd um að hafa gallann svartan með grænni rönd. Settir verða upp listar fyrir framan hverja deild.

  • Gjald fyrir starfsárið 2011 -2012 verða 3000 kr. á fjölskyldu fer í heimabanka fyrir jól með gjalddaga í febrúar.

 

Fundur foreldrafélags Akrasels 14. nóvember 2011

Mættir: Sigga Dísa, Kristín, Hrönn, Þórný, Margrét. Frá leikskólanum Anney og Sigurður

Dagskrá:

  • Tekin ákvörðun um að hafa jólaballið á leikskólanum, betri matur á rauðum degi.
  • Vinna í að panta leikskólagalla.
  • Rætt um jólaföndur, finna eitthvað nýtt fyrir börnin. Ákveðið að fá keilur í Trico og gera jólasveina og jólatré. Kaupa þarf málningu og kreppappír.

 

 

Fundur foreldrafélags Akrasels 15. september 2011

Mættir: Guðrún, Þórný, Sigga, Hafdís, Alexander, frá leikskóla: Anney, Siggi.

Dagskrá:

  • Rætt um fyrirhugaðan starfsdag 11. nóvember.
  • Rætt um að hætta með "stóra" foreldrafundi samkvæmt niðurst. könnunar
  • Umræða um lög og reglur foreldraráðs og foreldrafélaga. Foreldraráð má ekki starfa án leikskólastjóra.
  • Rætt um hvort halda eigi fund með foreldrafélagi og foreldraráði og boða nýja menn inn. Ákveðið var að halda aðalfund 28. september og kynna starf síðasta árs og hvað sé framundan hjá foreldra- félagi og ráði.
  • Ákveðið að panta sýninguna Pétur og úlfurinn sem verður í desember.
  • Búnar verð til nýjar kröfur, 3000 kr. á fjölskyldu.
  • Athuga hvort panta eigi Henson galla aftur.
  • Jólaföndur foreldrafélagsins verður laugardaginn 3. desember.
  • Leikskóladagatalið kemur inn á heimasíðuna á næstu dögum.
  • Alexander gerir auglýsingu varðandi aðalfund.

 

 

 

 

Fundur foreldrafélags Akrasels 12.janúar 2011

Mættir:Anney, Margrét Þóra, Þórný Alda, Sigga, og Alexander.

Dagskrá:

1. Endurmat á jólaballi (framkvæmdarþáttum)

  • Opnun- skilaboð vegna forfalla bárust of seint til foreldrafulltrúa. Hrönn Ríkharðs.átti leið hjá og opnaði skólann.

  • Of mörg og misvítandi skilaboð til hljómsveitar þarf að passa uppá að ekki myndist bið.

  • Þarf að hafa fleiri til að undirbúa

  • Æskilegt að fjórir til fimm fari og skoði skólann áður en viðburður er haldinn á svæðinu.

  • Frágangur gekk vel

  • Veitingar, vínber og piparkökur borðuðust vel.

  • Endurskoða veitingar-vöfflur og heitt súkkulaði eða piparkökur og mjólk einnig kom upp hugmynd að foreldrar komi með veitingar á hlaðborð.
    Ný stjórn tekur ákvörðun um það á næsta ári.

  • Það þarf að vera mun skýrari verkstjórn á næsta ári ef foreldraballið verður haldið aftur. Umræða um hvort foreldraföndrið væri ekki nóg sem viðburður í desember?

  • foreldraföndrið gekk með eindæmum vel.

2.       Íþróttagallar alveg frábærir almenn ánægja.  Það er alltaf hægt að panta galla hjá Henson.

3.       Elísabet gjaldkeri er mjög ánægð með innheimtur í foreldrasjóð.

4.       Sameiginlegur stofnfundur foreldrafélaga og ráða á Akranesi þann 26.1.2011 foreldraráð Guðmundur, Hafdís og Ragnhildur voru boðuð á fund. Hafsdís og Guðmundur boðuðu forföll. Okkur kom saman um að það væri mjög gott ef þeir sem hafa áhuga myndu mæta á stofnfundinn, Alexander bauð sig fram sem fulltrúa foreldra í Akraseli. Ragnhildur benti á Guðmund Claxton sem varafulltrúa í stjórn nýja félagsins.

 

Fleira ekki gert fundi slitið.

 

 

Fundur foreldrafélags Akrasels 3.nóvember 2010.

Mættir: Margrét Þóra ritaði fundargerð, Alexander, Hafdís Bergs, Guðrún M., Sólveig,  Þórný.

Málefni á dagskrá

  • Jólaball
  •  Jólaföndur
  •  Henson gallar
  • Rætt um verkferla vegna Jólaballs og föndurs, skráð í verkferla hlutverkaskipti.
  • Alexander tók að sér að gera lista sem setti verða inn á deildir til að virkja aðra foreldra. Bæði fyrir jólaföndur og jólaball.
  •  Ákveðið var að hafa heitt súkkulaði og vöfflur á jólaballi. Í jólaföndri heitt súkkulaði og piparkökur.

  • Henson-gallar : Sólveig ætlar að taka að sér að hafa yfirumsjón með pöntunum  ásamt Evu mömmu Dodda á Gljúfri.  Margrét kemur á samskiptum þeirra í milli.

  • Foreldrafélagið gefur leikskólanum leyfi til að velja jólaleikrit.

  • Netlisti farinn til Elísabetar gjaldkera, Anney og Elísabet græja það sem þarf fyrir næstu innheimtu.

  • Góðar og gagnlegar umræður um leikskólamál.

      

Foreldrafundur 7.apríl 2010

Mættir : Hafdís - Berg , Júlíana –Klettur, Alexander  - Klettur, Elísabet I-Lækur/Berg, Þórný  - Mýri,  Sigga -Gljúfur, Guðrún –Gljúfur, Anney-ritari

  • Við ræddum um innheimtu í ferða og skemmtisjóð barna, innheimtur fyrir starfsárið 2009-2010 ganga ekki nægilega vel og því verður gripið til þess ráðs að veita foreldrum barna sem ekki hafa greitt gjaldið frest til sunnudags að leggja inn á reikning sjóðsins.  Eftir það verða sendir út gíróseðlar til foreldra á þeirra kostnað. Síðan munu foreldrar fá sent í heimabanka greiðsluseðil á næsta starfsári. (Anney gerir lista og  Elísabet sendir í heimabanka).
  • Sveitaferð verður 11. maí að Bjarteyjarsandi.
  • Útskriftarferð í Skorradal verður 27.-28. maí og gist í eina nótt.
  • Útskrift fyrstu vikuna í júní (góðviðrisdag) úti piknikk stemning( fá hljóðkerfi eða fara inn og afhenda útskriftarplagg)verkaskipting ákveðin á næsta fundi.
  • Við ræddum viðburði, hvað á að vera í boði!?  Við munum senda út viðhorfskönnun í maí. t.d. Sveitaferð, útskriftaferð, jólaföndur, jólaball, Fjölskylduferð að hausti ,útskrift, leiksýningar o.fl. (Það kom hugmynd um að setja á fjölskylduferð í haust, fara t.d. Skorradal einn laugardag og tína ber og hafa það huggulegt saman).
  •  Anney gerir drög að verkferlum  vegna viðburða á vegum foreldrafélagsins og sendir á fulltrúa.
  • Sigga og Hafdís ætla að taka að sér að kynna foreldrafélagið fyrir foreldrum barna sem koma á kynningarfund í maí.
  • Við ræddum um breytingar á starfsmannahópnum sem oft verða á vorin.
  • Guðrún saknar sýningarinnar í Kirkjuhvoli. (Anney kemst að því hvenær næsta sýning verður)
  • Einnig kom ósk foreldra um að síðasti föstudagur í mánuði sé opin söngfundur fyrir foreldra og forráðamenn. Frá 9-9.30, foreldrum þeirrar deildar sem treður upp hverju sinni  verður sérstaklega boðið.
  • Ábending frá foreldrum öldunganna um skilvirkari fréttaflutning  í tölvupósti.
  • Óskir um frekari viðburði eins og regnbogadag, vasaljósadag, hattadag o.þ.h.

Það skiptir miklu máli að foreldrar greiði í ferða og skemmtisjóð því  sjóðurinn stendur fyrir kostnað af rútuferðum í sveitaferð og útskriftarferð, leiksýningu, jólaballi , föndri og útskriftarveislu svo eitthvað sé nefnt.

 

 

Foreldrafundur 10.desember 2009

Mættir: Anney, María, Alexander, Elísabet, Sigga, Magga og Lára mætt.

1. Rætt var um að gott væri ef fleiri foreldrar tækju virkari þátt í foreldrafélaginu.

2. Jólaföndrið var rætt og hvað hefði betur mátt fara. Hafdís kom með nokkra góða punkta eins og það hefði verið gott að foreldrafélagið hefði hist í smástund áður en föndrið byrjaði. Þannig væri hægt að samstilla sig og fara yfir hugmyndir. Einnig væri gaman að í lokin myndu allir hittast í salnum og enda á samsöng. Hita aðeins upp áður en haldið er niður á torg og með slíku fyrirkomulagi væru foreldrarnir ekki að týnast smátt og smátt heldur færu þeir sem hópur.

3. Jólaball foreldrafélagsins verður haldið í sal Grundaskóla þann 28.des klukkan 14.00.

  • Mæting verður klukkan 12.30 til að byrja að baka vöfflur.
  • Ballið byrjar klukkan 14.00
  • Búið að ganga frá greiðslu til hljómsveitarmanna.
  • Búið að boða jólasvein á skemmtunina.
  • Júlla formaður tekur að sér að bjóða fólk velkomið og setja jólaballið. Hún mun einnig sjá um að halda dagskránni í samráði við Heiðrúnu Hámundar.
  • Í poka jólasveinsins munu leynast gómsætar mandarínur.
  • Þeir foreldra sem mæta fyrstir þurfa ekki að ganga frá í lokin.

Fleira ekki rætt.

 

Stjórnarfundur foreldrafélgas Akrasels 6. okt 2009

Fundur foreldrafulltrúa í  foreldrafélagi Akrasels.

Mættir:  Alexander Eck- Klettur, Júlíana-Klettur, Sigga –Gljúfur, Guðrún-Gljúfur, Hafdís-Berg, Elísabet-Berg, Guðrún-Mýri,  Margrét Þóra aðstoðarleikskólastjóri, Anney leikskólastjóri

Þórný-Mýri boðaði forföll

1.       Nýir fulltrúar boðnir velkomnir

2.       Nýr gjaldkeri bauð sig fram Elísabet Ingadóttir mamma Sindra Dags á Bergi og Sævars á Læk. Gjaldið er áfram 3000 kr. á heimili og á að standa undir kostnaði við ballið, föndrið, ferðir og jafnvel eina leiksýningu. Elísabet ætlar að a.t.h  hvort hægt verði að senda kröfuna í heimabanka án mikils kostnaðar.

3.       Ræddum um jólaföndur  28. Nóv. Sama dag og jólatré bæjarins verður tendrað á Akratorgi.  Foreldrar standa fyrir föndri frá 14.00-15.00. foreldrafulltrúar mæta 12.30 og undirbúa.

a.       Innkaup, fyrir  veitingar ,heitt súkkulaði og piparkökur – eldhús

b.      Föndur- könglar Guðrún og Sigga-Gljúfri

c.       Innkaup fyrir leirgerð - Margrét Þóra

d.      Leirgerð - Anney

e.      Hita súkkulaði og annar undirbúningur , Guðrún, Alexander, Hafdís,.....

Ræddum einnig um að skipta föndurefni á milli þannig að allir fá eitthvað,

4.       28. Des. jólaball foreldrafélagsins í Grundaskóla

a.       Anney búin að panta Grundaskóla.

b.      Alexander ætlar að kanna með tónlist á ballið

c.       Hafdís þekkir góðan Jólasvein

d.      Eldhús sér um að hita súkkulaði og gera vöffludeig

e.      Foreldrar skipta með sér öðrum undirbúning, við þurfum að kanna hvort við fáum fleiri í lið með okkur.

Mikil umræða um hvort hægt verði að fá músík og jólasveina án endurgjalds þannig sparast og þá verður hægt að bjóða börnum uppá leiksýningu í des. foreldrar taka að sér að kanna málið.

 

Stjórnarfundur foreldrafélags Akrasels 17. febrúar 2009  

1. Heimasíða Akrasels

Búið er að setja inn upplýsingar á heimasíðu leikskólans um foreldrafélagið og stjórn þess.  Einnig er búið að setja inn nokkrar upplýsingar um foreldraráðið.


Ákveðið að kynna hlutverk foreldrafélagsins og foreldraráðsins á foreldrafundi sem haldinn verður fimmtudaginn 19. febrúar.  Á þeim fundi verða sumarlokanir leikskóla Akraneskaupstaðar kynntar foreldrum.


2. Sumarlokun í leikskólanum 2009

Farið yfir þær sparnaðaraðgerðir sem kynntar hafa verið af bæjaryfirvöldum.  Leikskólarnir verða lokaðir í 4 vikur og engar afleysingar verða fengnar vegna sumarleyfa.  Einnig verða greiðslur vegna fundartíma skornar niður og þeir því færðir inn í dagvinnutíma þ.e. 4 fundartímar verði færðir inn í dagvinnutíma 4 föstudaga og börnin því sótt fyrr þá daga.  Tillaga um að hafa þetta einn dag sem yrði tengdur vetrarfríum grunnskólanna eða páskafríi.  Ekki er gert ráð fyrir kynningarfundi að hausti og aðhald verður í innkaupum.


Foreldraráðið kynnti fund sem það hafði setið með fulltrúum bæjarins (Svölu, Helgu og Eydísi).  Á þeim fundi kom upp sú hugmynd að leggja fram könnun til foreldra allra leikskólanna til að athuga hvenær þessar 4 vikna lokanir hentuðu foreldrum hvers leikskóla best þ.e. hver könnun er sjálfstæð.  Svörunin verður bindandi.


3.  Krakkasjóðurinn

Þarf að minna foreldra á að greiða í krakkasjóðinn.  Ákveðið að senda bara áminningu á þá sem ekki hafa greitt í hann.


Ákveðið að Christel, Ína Dóra og Vilborg færu úr stjórn foreldrafélagsins þar sem þær eru fulltrúar í foreldraráði Akrasels. 


Stjórnarfundur 26. janúar 2009

* Anney ræddi sparnaðaraðgerðir í leikskólanum vegna kröfu Akraneskaupstaðar um aðhald í rekstri.  Sparnaðurinn felst í 4 vikna sumarlokun leikskólans og niðurfellingu funda hjá starfsmönnum.

* Ákveðið að lækka foreldrafélagsgjaldið þannig að hvert heimili greiði 3000 kr. óháð því hvort þaðan sæki 1 barn eða fleiri leikskólann.

Settum niður þá viðburði sem foreldrafélagið fjármagnar:

·        Lambaferð að Bjarteyjarsandi

·        Ferð útskriftarbarna í Skorradal

·        Útskriftarveisla að vori með þátttöku allra barna leikskólans

·        Jólaföndur

·        Jólaball

·        Leikrit einu sinni á ári

 

* Rætt var um foreldrakönnun sem senda á út í vor.  Skoða hvort við viljum láta kanna viðhorf foreldra um eitthvað sem snýr að okkar viðburðum.

* Óskað eftir foreldrum í 3 manna foreldraráð leikskólans.  Þrjár buðu sig fram.:

Christel Rúdolfsdóttir 

Ína Dóra Ástríðardóttir 

Vilborg Helgadóttir 

* Kynning á vegum Heimili og skóla verður í Bæjarþingsalnum 3. febrúar fyrir foreldraráð leikskólanna til að kynna hlutverk foreldraráða.

 Stjórnarfundur 26. nóv. 2008

* Foreldrafélagsgjöldin verða rukkuð 1 sinni á ári. 3000 kr. fyrir barn og 5000 kr. fyrir systkini.  Sendur verður tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um reikningsnúmer.  Þetta er gert til að spara innheimtukostnað.

* Opið hús næsta laugardag í leikskólanum.  Jólaföndur, kakó og piparkökur í boði frá kl. 14:00-15:00.  Kveikt verður á jólatrénu kl. 16:00 á Akratorgi.

* Hinn hluti hússins verður tekinn í notkun eftir áramót.  Þá flytja elstu börnin inn á Gljúfur og Berg.  Von er á 10 nýjum börnum í leikskólann.

* Hættum við að panta boli eða peysur merktar leikskólanum.

* Heimasíða leikskólans mun opna 1. desember.

Stjórnarfundur 26. nóv. 2008

* Foreldrafélagsgjöldin verða rukkuð 1 sinni á ári. 3000 kr. fyrir barn og 5000 kr. fyrir systkini.  Sendur verður tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um reikningsnúmer.  Þetta er gert til að spara innheimtukostnað.

* Opið hús næsta laugardag í leikskólanum.  Jólaföndur, kakó og piparkökur í boði frá kl. 14:00-15:00.  Kveikt verður á jólatrénu kl. 16:00 á Akratorgi.

* Hinn hluti hússins verður tekinn í notkun eftir áramót.  Þá flytja elstu börnin inn á Gljúfur og Berg.  Von er á 10 nýjum börnum í leikskólann.

* Hættum við að panta boli eða peysur merktar leikskólanum.
* Heimasíða leikskólans mun opna 1. desember.

Stjórnarfundur 28. okt. 2008

* Anney kynnti ný lög um leikskóla frá maí 2008 þar sem kveður á um að kjósa skuli í foreldraráð frá næstu áramótum.  Ákveðið var að bíða með að kjósa í ráðið þar til eftir áramót.

* Anney ræddi námskrárgerð og kynnti okkur moltugerð.

* Rætt var um Krakkasjóðinn og hvaða upphæð þyrfti að rukka til að ná að standa fyrir þeim atburðum sem við höfum áhuga á. 

* Ákveðið að hafa opið hús og jólaföndur 29. nóvember. 

* Gaman væri að panta boli, peysur eða flíspeysur merktar leikskólanum.

* Ákveðið að hafa jólaball leikskólans í Grundaskóla þann 29. desember kl. 14:00

* Samþykkt að fá jólakeikrit í leikskólann fyrir jólin.



Foreldrafundur sept. 2008

Á foreldrafundi Akrasels var óskað eftir foreldrafulltrúum úr hverri deild leikskólans til að starfa í stjórn foreldrafélagsins.

Eftirtaldir buðu sig fram:

Lækur:

Bryndís Þórarinsdóttir (Ilmur)

Lára Ingólfsdóttir (Arnbjörn Ingi) 

Mýri:

Ína Dóra Ástríðardóttir (Nökkvi)

Júliana Viðarsdóttir (Viðar) 

Tjörn:

Christel Rúdolfsdóttir, ritari (Elvira Agla)

Elfa Sif Ingimarsdóttir (Hanna Bergrós)

Vilborg Helgadóttir, formaður (Sigrún Dóra)  

Berg og Gljúfur:

Svava Brynja Sigurðardóttir, gjaldkeri (Alexander)

Ásdís Ósk Einarsdóttir (Freyja Íris)


Leikskólastjóri:
Anney Ágústsdóttir

Fulltrúi starfsmanna:
Valborg Ragnarsdóttir 

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is