Foreldrafélag leikskóla
Foreldrar í Akraseli ákváðu að við leikskólann starfi foreldrafélag. Í foreldrafélagi leikskólans eru allir foreldrar barnanna í leikskólanum. Markmið félagsins er að efla tengsl foreldra og starfsfólks, auka þátttöku foreldra í starfi leikskólans og tryggja velferð barnanna sem best. Foreldrafélagið innheimtir krakkasjóð til að fjármagna skemmtanir og viðburði á vegum félagsins.
Foreldrafundur er haldinn einu sinni á ári að hausti. Þar kynnir leikskólastjóri leikskólann og deildirnar kynna vetrarstarfið. Aðalfundur foreldrafélagsins er haldinn samhliða foreldrafundi leikskólans.
Skólaárið 2009-2010 verður gjaldið í Krakkasjóð 3000 kr. á heimili.
Skemmtanir og viðburðir sem foreldrafélagið fjármagnar:
· Lambaferð að Bjarteyjarsandi
· Ferð útskriftarbarna í Skorradal
· Útskriftarveisla að vori með þátttöku allra barna leikskólans
· Jólaföndur
· Jólaball
· Leikrit einu sinni á ári
Ath. Reikningur foreldrafélagsins er 0552-14-602919 og kennitalan er 501207-1870