ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Foreldrar :: Aðlögun
Prenta vefsíðu

 

Aðlögun

Að byrja í leikskóla er ný reynsla fyrir barnið og foreldra þess.  Allt er framandi og ókunnugt og því er mikilvægt að vel sé staðið að aðlögun í upphafi.  Börnin þurfa að fá góðan tíma til að kynnast starfseminni í leikskólanum, starfsfólkinu og börnunum. Hvert barn fær þá aðlögun sem þurfa þykir, a.m.k. fimm daga. Börnin eru stuttan tíma hjá okkur til að byrja með og síðan lengist tíminn smám saman. Foreldrar eru með þeim fyrstu stundirnar en fara svo að draga sig í hlé eftir því sem barnið öðlast meira öryggi. Aðlögun er ekki síður mikilvæg fyrir foreldra til þess að kynnast leikskólanum og starfsfólkinu. Hornsteinn er lagður að öryggi og vellíðan barnsins og samstarfi heimilis og leikskóla.

 

Könnun

Gerð var könnun meðal foreldra/forráðamanna í leikskólanum Akraseli vegna aðlögunar að deildunum Mýri og Læk haustið 2009. Hægt er að nálgast niðurstöður hennar hér.

 

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is