ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera

Foreldrasamvinna

Góð samvinna foreldra og leikskóla er forsenda fyrir árangursríkri dvöl og góðri líðan barnsins í leikskólanum. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Daglegar upplýsingar um barnið heima og í leikskólanum eru nauðsynlegar því að oft geta lítil atvik í lífi barnsins, valdið breytingum á hegðun þess.

Foreldrar eru velkomnir í leikskólann til þess að taka þátt í því starfi sem þar fer fram, í samráði við starfsfólk. Þeir eru sérstaklega boðnir í foreldrakaffi, í einkasamtöl, á foreldrafundi o.fl.
 

Látið vita ef einhver annar en þið sjálf sækir barnið. Börnum yngri en 12 ára er að jafnaði ekki heimilt að sækja barn í leikskólann, jafnvel þó um systkini sé að ræða.

Foreldrum er velkomið að hringja í leikskólann til að spyrja um líðan barnsins og eins mun starfsfólk hringja ef þörf krefur.
 

Í fataherbergjum og fyrir framan hverja deild eru upplýsingatöflur þar sem fram koma helstu upplýsingar um það sem er á döfinni hverju sinni.

 

Minnispunktar fyrir foreldra.

* Fylgja börnunum alla leið inn á deild

* Ekki skilja bílana eftir í gangi fyrir utan leikskólann.

* Fylla á kassana og þurrka út af merkispjaldinu þegar fyllt er á

* Tæma hólfin á föstudögum

* Fara heim með stórar leikskólatöskur, kassarnir koma í staðinn fyrir töskurnar

* Merkja fatnað barnanna

* Muna eftir útifötum, hlýjum peysum, regnfötum og auka húfu, vettlingum og ullarsokkum

* Taka með heim það sem er í hólfum barnanna, listaverk, blaut og óhrein föt

* Gefa sér tíma til að fara yfir óskilamunina

* Láta vita ef börnin eru veik eða í fríi 

 

Umhverfið   

Vinsamlegast akið varlega í næsta nágrenni leikskólans og skiljið bílinn ekki eftir í gangi. Skiljið hurðir og hlið leikskólans aldrei eftir opið og látið starfsfólk alltaf vita þegar komið er með barnið í leikskólann og þegar það er sótt.

Slys
Slasist barn í leikskólanum greiðist komugjald á slysadeild af leikskólanum. Akraneskaupstaður hefur samkvæmt lögum tryggingar er varða skaðabótaskyldu, þannig að öll börn eru tryggð í leikskólanum.


Vistunartími
Við biðjum ykkur um að virða keyptan tíma, komi upp atvik eða þörf fyrir lengri vistun þá er best að hafa samband við leikskólastjóra. Vilji foreldrar minni vistun þá er mánaðar uppsögn á tímanum eins og á leikskólaplássinu. Leikskólagjaldið er greitt fyrirfram. Gjaldskrá er endurskoðuð einu sinni á ári og taka breytingarnar mið af launa- og framfærsluvísitölu. Breytingar á gjaldskrá eru ákveðnar af rekstraraðila.

Akrasel opnar kl:7:30 og lokar kl:17:00.
Ef barn er að koma í leikskóla eftir veikindi þá er sjálfsagt að bjóða upp á inniveru.


Að koma og fara
Við leggjum áherslu á taka vel á móti barninu og láta það finna að það sé velkomið.  Í lok dags leggjum við áherslu á að barnið sé kvatt og þakkað fyrir daginn.  Mjög mikilvægt er að foreldrar fylgi barninu inn til starfsmanna og kveðji barnið þegar þeir yfirgefa leikskólann.

 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is