ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Deildir :: Tjörn
Prenta vefsíðu
15. maí 2012 10:37

Þriðjudagspistill

Halló allir Tjarnaraðdáendur

Við höfum það alveg súper fínt á Tjörn.  Sl. Þriðjudag skelltum við okkur á Langasand, þar fundum við krabba, köstuðum steinum í sjóinn, skrifuðum í sandinn, hlupum um og hoppuðum og skoppuðum. Það var sko bara gaman hjá okkur. 

Það var líka voða fínt veður í síðustu viku og við fórum með allskonar hefðbundin innileikföng út, legókubba og liti og vatnsliti.

Á fimmtudaginn  var Gulur dagur í tilefni af fyrsta heimaleik ÍA. Við fengum öll ÍA merki á kinn, sungum áfram skagamenn, sumir sungu að vísu áfram AGAmenn og enn aðrir áfram ÍAmerki ;)   og vorum gul og glöð allan daginn. Við fórum líka í listasmiðjuna og föndruðum með Karen og Hörpu.

Í gær og í dag erum við að æfa okkur að leika Hamarsmegin í húsinu því eftir sumarfrí erum við jú orðin næst elsti árgangurinn í húsinu og flytjum yfir í eldri kjarnann.

Næsta föstudag er lambaferðin okkar og við leggjum af stað frá Akraseli kl 9 og verðum á Bjarteyjarsandi til kl 14 og við reiknum með að vera komin heim fyrir kl 15.

Fyrirhugað er að hafa hjóladag 22.maí og væri þá gaman ef börnin kæmu með sín eigin hjól ef þau eiga...annars eigum við fullt af hjólum sem öll verða sett út.

Nýjar myndir: http://www.akrasel.is/deildir/tjorn/tjornmyndaalbum/tjorn-mai-1/

 

Tjarnarkveðjur

 

 

meira...
9. maí 2012 11:11

Apríl og mai

Góðan daginn

Það var nú aldeilis gott að koma aftur á leikskólann eftir námsferðina okkar. Núna erum við að vinna úr því sem við sáum og skoða hvernig við getum nýtt okkur það sem okkur leist sérstaklega vel á í okkar starfi.  Við skoðuðum 3 mjög ólíka leikskóla en það var eitthvað við þá alla sem höfðaði til okkar. Í Kaupmannahöfn skoðuðum við Galaxen (http://www.institutionen-galaxen.dk/)  grænfánaleikskóla sem vann líka eftir reggio emilio (http://www.sare.is/hugmynd/hugmyndafr__i/). Í Malmö Skoðuðum við Skeppets förskola (http://www.malmo.se/Medborgare/Forskola--utbildning/Forskola/Forskolor/Centrum/Forskolor-i-Centrum/Skeppets-forskola.html)  sá skóli lagði áherslu á útikennslu og var svona einna líkastur okkar. Í Malmö skoðuðum við líka útileikskólann Stock och  sten (http://www.malmo.se/Medborgare/Forskola--utbildning/Forskola/Forskolor/Vastra-Innerstaden/Forskolor-i-Vastra-Innerstaden/Uteforskolan-Stock-och-Sten.html). Hann var staðsettur í stórum almenningsgarði og starfsemin var öll utanhúss.

En annars höfum við það bara fínt á Tjörn og erum alltaf eitthvað að bralla.  25 apríl var græni dagurinn okkar og þá fórum við í gönguferð upp á safnasvæði vopnuð pokum sem við týndum rusl í. Við komum heim með dágóðan slatta af rusli sem einhverjir sóðar höfðu ekki sett í ruslatunnuna.  Við bjuggum svo til ruslalistaverk sem hanga núna inn á Tjörn. 26. Apríl var opið á milli deilda hjá okkur, það finnst krökkunum mjög gaman og skemmtilegast er að fara yfir í eldri kjarnann.

Í síðustu viku byrjaði Silvía Rán aftur hjá okkur og við bjóðum hana velkoman aftur. Við vorum við mikið að leika með stóru kubbanna (litlu holukubbana) að byggja allskonar hús og brautir. Við gerðum ruslaliistaverkin, drukkum úti í góða veðrinu og vorum mikið úti að leika. Við fengum hundinn Kotru í heimsókn á föstudaginn.

Þessi vika hefur líka litast mikið af veðrinu og við höfum verið mjög mikið úti og höfum verið að frétta af því að litlu ungarnir ykkar eigi erfitt með að halda sér vakandi eftir skóla. Nú er komin tími á að skella sólarvörn í hólfin  og gott að bera framan í þau áður en þið mætið á morgnanna J.

Nokkrar nýjar myndir: http://www.akrasel.is/deildir/tjorn/tjornmyndaalbum/tjorn-april-og-mai/

Ekki fleiri fréttir í bili.

Bestu kveðjur frá Tjörn

 

meira...
24. apríl 2012 11:53

Tjarnarkveðja

Það var svaka gaman á bókasafninu, við skoðuðum bækur og völdum nokkrar til að taka með heim, og lékum okkur í litla bókabílnum. Við fórum með strætó á bókasafnið og löbbuðum heim, það gekk bara vel en við orðin kófsveitt þegar heim var komið.

Svo var það dótadagurinn , við vonum að allir hafi fengið dótið sitt heim aftur, en það getur verið erfitt að halda utan um það þegar margir koma með mikið af smádóti. En sem sagt við vonum að allt hafi skilað sér heim aftur. Krökkunum fannst mjög skemmtilegt  að hafa dót með sér að heiman og það var mikið skoðað og leikið þann dag. Allir stóðu upp í samverustundinni og sýndu og sögðu frá sínu leikfangi.

Við minnum svo á að leikskólinn er lokaður föstudaginn 27 apríl, mánudaginn 30 apríl og þriðjudaginn 1 maí. Við opnum svo aftur 2 maí, stútfullar af hugmyndum eftir námsferð til Malmö og kaupmannahöfn.

Bestu kveðjur  frá  Tjörn

 

meira...
17. apríl 2012 10:36

Mikið að gera á Tjörn

Við erum búin að leika fullt bæði inni og úti. Fara í jóga, salinn, hlutverkaleik, hárgreiðsluleik, kubba, lesa, syngja, setja niður fræ og skemmta okkur alveg fullt. Við erum búin að fara í nokkra göngutúra, erum að æfa okkur fyrir sumarið. Við erum búin að föndra fullt bæði páskaföndur og annað t.d. mála með fótunum.

Það var gulur dagur hjá okkur í dymbilvikunni, þá var opið á milli deilda og allir gulir og glaðir J mikil stemmning.

Foreldraviðtölin næstum því búin. Það er aldeilis búið að vera gott að setjast niður með ykkur og spjalla smá. Nokkrir hafa  saknað þess að ekki sé meira um að vera hér á heimasíðunni okkar og höfum við fullan hug á að bæta úr því J.

Nú hafa öll börnin á Tjörn verið stjarna vikunnar, krakkarnir hafa notið sín í þessu hlutverki og við ætlum  að byrja aftur með stjörnu vikunnar verkefni næsta haust.

Þeim fjölgar alltaf hjá okkur 4ra ára börnunum sl. Sunnudag átti hann Sveinn Þór afmæli og við héldum upp á það í gær.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í dag er það svo bókasafnið og strætó. Á morgun er dótadagur . Það er lokað á fimmtudaginn sumardaginn  fyrsta. Á föstudaginn verður sumarið jú komið til okkar og þá ætlum við að sjálfsögðu  öll að fara út á stuttbuxum ;) Þannig að það er nóg um að vera næstu daga.

Við viljum svo minna á starfsdaga leikskólans 27 og 30 apríl þá er leikskólinn lokaður og opnar aftur hjá okkur  miðvikudaginn 2 mai.

Nýjar myndir:  http://www.akrasel.is/deildir/tjorn/tjornmyndaalbum/april-2012/

Stuð  kveðjur  frá okkur á Tjörn

 

meira...
20. mars 2012 10:03

febrúar og mars

Góðan daginn

Mikið búið að gera síðan síðast.

Fyrst ber að nefna öskudaginn sem var mjög vel lukkaður og allir alsælir, hvort sem þeir voru prinsessur, álfar, Sollur, dýr, íþróttaálfar, í náttfötum eða köngulóamenn J. Við héldum ball, slógum köttinn úr tunnunni, fengum popp svo var opið á milli hjá okkur á Lindum. Eftir hádegi skottuðumst við úti í garði.

Það var svo mikið gaman að fá mömmur, ömmur og vinkonur í konudagsmorgunverðinn.

Við erum búin að fara í nokkra göngutúra eins og á Vallasel, Garðasel, á Safnasvæðið og í Akraneshöllina. Það gengur bara orðið mjög vel  hjá okkur í göngutúrum og við verðum pottþétt  orðnir  sérfræðingar í ferðalögum í vor.

Við erum búin að vera sulla mikið bæði inni og úti, mála, föndra, syngja og leika.

Við erum líka búin að halda upp á 4 afmæli og við óskum afmælisbörnunum til hamingju J.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Aldís Karen varð 3ja ára 19 febrúar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Amanda varð 4ra ára  25 febrúar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Árni Daníel varð 4ra ára 1 mars

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Díana Rós varð 4ra ára 10 mars

Tjarnarkveðjur

 

meira...
13. febrúar 2012 11:25

Halló, halló

Það er alltaf nóg um að vera hjá okkur. Krakkarnir ykkar frábæru eru orðin mjög dugleg í hlutverkaleik og detta alveg í karakter nánast um leið og þau koma á leikskólann. Ekki er heldur neitt mál fyrir þau hætta í leiknum og taka saman.

Leikskólastarfið er komið í fastar skorður eftir jólafrí og núna förum við yfirleitt alltaf út eftir hád. Planið okkar fyrir hád. er eftirfarandi:

Mánudagur: Frjáls leikur inni, úti eða bæði

Þriðjudagur: Ferðadagur

Miðvikudagur: Hópastarf (leggjum áherslu á málrækt þessa daganna)

Fimmtudagur: Skapandi starf (lista Lækur)

Föstudagur: Söngsalur, Hreyfing (salur og Jóga.

Við erum búin að bralla ýmislegt.  Á Bóndadaginn komu pabbar, afar og frændur í graut til okkar og það var sko bara gaman, í staðinn fyrir ávexti þann dag fengum við harðfisk og í hádeginu var sviðaveisla. Þetta var sannkölluð þorraveisla hjá okkur.

Síðan var tannverndarvikan og þá fórum við með strætó niður í bæ og heimsóttum tannlæknastofuna á Laugabraut þar sem tannfræðingur tók á móti okkur og allir fengu að prufa að setjast í stólinn. Lára mamma hennar Aldísar Birtu kom svo með stóran góm og tannbursta og fræddi börnin enn frekar um tannhirðu. Börnin hlustuðu og horfðu á Karíus og Baktus og við ræddum mikið um hollustu þessa viku.

Síðasta föstudag fengum við sjúkrabíl í garðinn og fengum að skoða í tilefni af 112 deginum.

Nóg um að vera framundan því að næsta föstudag ætlum við að bjóða mömmum, ömmum, frænkum og systrum í konudagsmorgunverð til okkar. Morgunverðurinn hefst kl 8.00 og er til 10:00. Í salnum verðum við svo með skemmtilega sýningu í tilefni dagsins.

Næsta vika er líka stór vika bolludagur á mánudaginn, Sprengidagur á þriðjudaginn og svo hin frábæri öskudagur á miðvikudaginn. Við Lindarmegin í húsinu verðum með ball í sal frá kl 9:30 þann dag. Á Öskudaginn má koma í náttfötum eða furðufötum. Furðuföt geta verið of stór skyrta af pabba, ósamstæðir sokkar eða búningur. Við eigum fullt af furðufötum hér á leikskólanum þannig að enginn þarf að storma í búðina til að kaupa neitt. Allir fylgihlutir eiga samt að var heima (vopn, töfrasprotar og þessháttar).

Bestu kveðjur frá okkur á Tjörn

 

 

meira...
13. janúar 2012 10:52

Gleðilegt ár

 

Tíminn flýgur og desember og 2011 hlaupið frá okkur. Það var ýmislegt brallað hér í desember, hér var brúðuleikshúsið um Pétur og úlfinn. Við héldum rauðan dag og þann dag var jólaball og jólamatur. Við lögðum lokahönd á jólagjafirnar. Við lékum okkur fullt úti í snjónum og reyndum að skapa hér notalega stemmningu. Við héldum líka upp á 3 þriggja ára afmæli.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kara Líf varð 3ja ára 12. des

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Jóhannes Már varð 3ja ára 16. des

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tinna  varð 3ja ára 23. des

það sem af er þessu ári höfum við verið mikið að leika í frjálsum leik, Latarbæjarleikfimi, úti í snjónum og gefa litlu fuglunum brauð og epli.  Við ætlum svo að byrja í næstu viku í öllu okkar skipulagða starfi aftur. Síðasta föstudag kom Snorri dýraeftirlitsmaður  Akraness með hundanna Mugg og Barón og fræddi börnunum hvernig á að umgangast hunda. Ólöf Inga koma hér á miðvikudaginn með ís fyrir alla til að kveðja okkur en hún er nú flutt til Danmerkur.  Rós er komin aftur, í janúar og febrúar verður hún í 50% starfi (8,15-12,15) og 50% barneignarleyfi en byrjar svo aftur í allt að því fullu starfi í Mars þegar barneignarleyfi hennar líkur. Rós og Oddný eru nú báðar í 50% deildarstjórastöðum á Tjörn. Jón Þór er nýr starfsmaður hjá okkur en hann vinnur frá kl 13-17. Við kveðjum Ólöfu Ingu sem farinn er á vit nýrra ævintýra og óskum henni alls hins besta og bjóðum nýja og gamla starfsmenn velkomna.

Nokkrar nýjar myndir: http://www.akrasel.is/deildir/tjorn/tjornmyndaalbum/tjorn-januar-2012/

Tjarnarkveðjur

meira...
22. nóvember 2011 08:28

Nóvemberfréttir

 Nóvember hefur heldur betur flogið áfram, enda búið að vera nóg að gera hjá okkur. Í október voru bæði dótadagur og bangsadagur hjá okkur. Börnunum fannst mjög gaman að koma með dót og bangsa í leikskólann og var spennandi að skoða dótið hjá hvort öðru.

Við erum búin að fara í nokkrar gönguferðir síðustu vikur. Einnig erum við búin að fara í hjólaferðir og strætóferðir, okkur finnst svo gaman að kíkja í smá leiðangur J Við erum búin að fara í Skógræktina, á safnasvæðið að skoða gömlu bátana og svo erum við búin að fara í göngutúr á Vallarsel og Garðasel. Í desember stefnum við á að fara rúnt um bæinn með strætó og skoða jólaljósin.

Jólaundirbúningurinn er hafin hjá okkur á Tjörn, enda styttist í jólin. Við erum búin að skreyta deildina okkar með fullt af jólaljósum, enda mjög notalegt að hafa ljósin þegar það er svona dimmt úti.  Jólaföndrið er komið á fullt og er búið að setja upp jólaföndurverkstæði inná Læk. Hver deild hefur Læk einu sinni í viku fram á jólum og erum við þar á fimmtudögum. Hópastarfið verður með öðru sniði fram á jólum, en við ætlum að vera meira í stöðvavinnu, mála, lita og föndra...bara spennandi J

Við erum búin að vera með þrjú afmælisbörn síðasta mánuðinn. Gunna varð 3 ára þann 23.október, Róbert varð 3 ára þann 31.október og María Erla varð 3 ára þann 8.nóvember. Til hamingju með afmælið kæru vinir J

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nýjar myndir á heimasíðunni: http://akrasel.is/deildir/tjorn/tjornmyndaalbum/tjorn-november-2011-3/

Bestu kveðjur

Tjarnarbúar

meira...
18. október 2011 10:44
20. september 2011 10:08
17. ágúst 2011 02:13
29. júní 2011 09:53
31. maí 2011 02:16
15. apríl 2011 01:53
25. mars 2011 10:58
21. febrúar 2011 03:17
9. febrúar 2011 11:32
1. febrúar 2011 11:56
19. janúar 2011 02:53
21. desember 2010 10:13
13. desember 2010 10:11
 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is