Börnin eru nú 25 á deildinni og er búið að vera mikið líf og fjör hjá okkur í vetur.
Höfum unnið með börnin í smærri hópum 4 daga vikunnar og átt salinn 1 dag í viku. Börnin hafa tekið mikilum framförum í öllum sínum leik og starfi þ.e.a.s. gaman að fylgjast með alhliðaþroska þeirra á þessum aldri. Þau eru orðin svo flínk á umhverfi sitt og samskipti þeirra á milli rosalega skemmtileg.
Það er búið að æfa sig og bralla margt og mikið... það sést á skemmtilegum myndum sem birtast hér í myndamöppu deildar.
Nú er vorið komið og þá lyfnar yfir öllu úti,við aukum útiveru í takt við veður því vetrarveðrið var ansi kalt í fleiri vikur fyrir svona litla kroppa.
Litlu flugurnar sem eru komnar í gluggana núna vekja upp könnunarþörf og verður því rosa-spennandi að upplifa vor og sumar með þessum frábæra barnahóp okkar á Mýri.
Haustið er búið að vera einstaklega skemmtilegt á Mýri þar sem 24 börn byrjuðu sína leikskólagöngu á þessu herrans ári 2011.
Við prófuðum þátttökuaðlögun með foreldrum ,þar sem þeir voru með barninu í 3 daga hjá okku í leik og starfi....og viljum við segja að þetta tókst allt glimrandi vel og barnahópurinn einstaklega góður.
Það er svo mikið nýtt sem börnin þurfa að læra svona í upphafi og er búið að vera frábært að fylgjast með hvernig þau verða öruggari með sig í nýju umhverfi.
Nú í okt. byrjuðum við í svæðavinnu/leik og allur efniviður mikið rannsakaður, einnig fá þau Jóga-tíma einu sinni í viku sem þeim finnst rosalega spennandi.
Sjá myndasafnið okkar!!!
Kv, MÝRI :)