ForsíðaDeildirForeldrarUm skólann
Náttúra - Næring - Nærvera
Forsíða :: Deildir :: Berg
Prenta vefsíðu
8. maí 2012 03:07

Berg - maí 2012

Það er alltaf stuð hér á Bergi.

 Við höfum brallað ýmisslegt síðan síðasta frétt var skrifuð, við tókum okkur verulega á í göngumferðum í byrjun árs og fórum að skoða hina ýmsu vinnustaði, við fórum t,d og skoðuðum kirkjuna, þar sem séra Eðvarð talaði aðeins við okkur og sagði okkur frá hlutverki kirkjunar. Við fengum líka að skoða fallega orgelið og tókum lagið með Sveini Arnari organista. við fórum líka í pósthúsið, Fjöliðjuna eða fjöriðjuna eins og margir vildu kalla hana, þar er gert margt annað en að flokka dósir og flöskur. Það var líka kíkt á bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar, Landmælingar Íslands svo fátt eitt sé nefnt.

Krakkarnir á Bergi fóru líka nú í apríl í vorskóla og gekk það eins og í sögu þar sem þau stóðu sig eins og hetjur og voru upp til hópa kurteisir og duglegir nemendur. Flestum fannst nestið og frímínotur standa upp úr.

Myndir frá vorskóla Grundaskóla má sjá hér www.grundaskoli.ismyndir-ur-skolalifi/vorskoli-leikskolabarna/

Við höfum einnig verið dugleg að vera úti núna síðustu vikur, höfum aðeins verið að kíkja í skógræktina, við stefnum á það að nýta alla góðviðrisdaga í mikla útiveru. Krakkarnir hafa verið rosalega dugleg að spila og tefla gaman að sjá næstu stórmeistara æfa sig á Bergi. Það sem er framundan hjá okkur  er útskriftarferð í Skorrdal en allar nánari upplýsingar fara heim með börnunum í dag og sjálf útskriftin sem verður þann 31. maí 2012

 

meira...
17. janúar 2012 01:03

Gleðilegt nýtt ár kæra fólk!

Bergbúar taka á móti nýju ári með bros á vör.  Við látum veðrið lítið á okkur fá og gerum gott úr því hverju sinni.  Það hafa þó komið nokkrir dagar sem við höfum ekki treyst okkur út að leika, en það hefur líka verið vegna hálku í garðinum okkar.

 Nú styttist í 6 ára afmælin hjá mörgum og erum við nú þegar búin að halda upp á eitt.  En hún Bjarnheiður Ninja varð 6 ára þann 4. janúar!

Við erum búin að breyta hópaskiptingu við matarborðið og allir hafa fengið nýja sessunauta.  Hópaskiptinguna má sjá hér;  http://akrasel.is/deildir/berg/hopaskipting/

Það er rífandi gangur í framhaldssögunum okkar.  Við erum búin að lesa Fíusól, Jón Odd og Jón Bjarna og erum nú langt komin með Ronju ræningjadóttur.  Eftir hverja bók höldum við að sjálfsögðu vídeóveislu og horfum á myndirnar!

Fimmtudaginn 19. janúar verður rafmagnslaus dagur í leikskólanum.  Þá mega allir koma með vasaljós að heiman.   Margir bíða spenntir eftir þessum degi og velta því mikið fyrir sér hvernig verði að koma í leikskólann og engin ljós verða kveikt.

Við ætlum að halda upp á Bóndadaginn (20/1) með hefðbundnum hætti.  Öllum pöbbum, öfum og bræðrum verður boðið í hafragraut með öllu tilheyrandi á milli 8.00 og 10.00.  Við vonumst til að fá sem flesta karlmenn í morgunmat til okkar.

 

 

meira...
15. desember 2011 02:12

Jóla Berg

Desember mánuður hreinlega flýgur áfram. 

Það er mikið um að vera og mikill spenningur í litlu fólki.  Við höfum meðal annars farið í heimsókn á bókasafnið, þar sem Ásthildur Snorradóttir las fyrir okkur úr nýrri bók sinni um Rafel engil.  Nokkrir útigarpar fóru í föstudagsfjörsgöngutúr í Grundaskóla að skoða kaffistofukeppnina.  Mikil upplifun og mikið rætt um Grýlu og Leppalúða og þykjustu börnin í pottinum hennar Grýlu.  Við erum búin að skreyta jólatréð í salnum og börnin vinna hörðum höndum að því að útbúa skraut á tréð.  Anna Lára hjá Rauða krossinum tók höfðinglega á móti okkur í vikunni.  Hún bauð okkur í vídeósýningu og allir fengu kókómjólk og piparkökur til að kjamsa á.  Okkur var boðið í heimsókn á Safnasvæðið, þar vorum við frædd um jólahefði fyrri tíma og lesinn jólasaga í Stúkuhúsinu.  Bernd Ogrodnik kom og sýndi brúðuleikritið um Pétur og úlfinn.  Virkilega skemmtileg sýning sem krakkarnir nutu vel.

Föstudaginn 16. des. verður rauður dagur í leikskólanum, jólaball og jólamatur!  Allir að mæta í einhverju rauðu eða með jólasveinahúfur.

Við höfum verið dugleg að fara út á hverjum degi þrátt fyrir kulda, við klæðum okkur bara mjög vel og erum úti í styttri tíma. Börnin eru mjög glöð að komast út á hverjum degi, þau eru bæði dugleg að renna sér á rassaþotum og leika sér í snjóleikjum J

 

meira...
24. október 2011 01:40

Október

Nú erum við byrjuð á fullu í vetrarstarfinu, skólaheimsóknir komnar á fullt og allir krakkarnir búnir að heimsækja sinn skóla einu sinni. Það hefur gengið mjög vel og börnin alveg til fyrirmyndar.  Við erum líka búin að taka góðar göngu- og strætóferðir um Akranes í tengslum við verkefnið um húsin okkar og bæinn.

Nú er foreldraviðtölum að ljúka þar sem rætt var um líðan barnanna og niðustöður úr Hljóm- prófi kynntar.  Við þökkum foreldrum kærlega fyrir gott spjall.

Fimmtudaginn 27/10 er Alþjóðlegur bangsadagur.   Þá má koma með einn bangsa í leikskólann. Á fimmtudaginn  hefjast einnig vökudagar og ætlum við að sýna verkið okkar; Húsið mitt og ég.  Verkið verður til sýnis í anddyri Bónus að Smiðjuvöllum.

Föstudaginn 28/10 verður fyrsta foreldrasöngstund vetrarins, en þá eru foreldrum boðið að koma og taka þátt í söngstund á sal.  Söngstundin hefst klukkan 9.15.  Að þessu sinni eru það Gljúfrabúar sem ætla að troða upp.

Mánudaginn 31. október er okkur boðið í heimsókn á Bókasafnið í tengslum við bangsadaginn og vökudaga.  Lesin verður fyrir okkur saga og spjallað um safnið og þær reglur sem þar gilda.

Fullt fullt af spennandi verkefnum sem bíða okkar á Bergi.

meira...
22. september 2011 01:29

Ferðalög sumarsins

Póstkort úr sumarfríinu
Hérna vorum við í sumar :-)
 

meira...
22. september 2011 12:57

September

Nú er vetrarstarfið að fara af stað hjá okkur á Bergi.  Það verður nóg að gera í vetur og mörg spennandi verkefni sem bíða okkar.  Í síðustu viku heimsóttum við báða grunnskólana.  Það var vel tekið á móti okkur, við fengum að skoða skólana og spjalla við skólastjórana.  Skólaheimsóknir hefjast svo í október og munum við segja ykkur nánar frá þeim í foreldraviðtali.  En boðið verður upp foreldraviðtöl fyrstu vikuna í október.  Stutt spjall um líðan barnsins, starfið í vetur, niðurstöður úr Hljóm prófinu og fleira skemmtilegt.  Listi verður hengdur upp í næstu viku, þar sem foreldrar geta skráð sig á viðtalstíma.

Vikuskipulagið  á Bergi mun líta svona út í vetur:

Mánudagur; Jóga og salur

Þriðjudagur; Skólaheimsóknir/´skóla´verkefni

Miðvikudagur: Ferðadagar

Fimmtudagur:  Hópastarf/stöðvavinna

Föstudagur: Söngfundur á sal og föstudagsfjör með Gljúfri og Kletti

Nýjar myndir á heimasíðunni !!!

http://akrasel.is/pages/myndasafn/berg-uppskera-2011/

ATH Leikskólinn verður lokaður 26. september, vegna skipulagsdags starfsfólks!

 

meira...
5. maí 2011 03:10

Maí

Loksins, loksins, sumarið er að koma :-)  Það hefur verið mikill spenningur að fá að fara út á strigaskónum og er það yfirleitt það fyrsta sem krakkarnir spyrja um þegar þau mæta J  Sólin má varla láta sjá sig án þess að allir vilja rífa sig úr hverri spjör og helst vera á nærfötunum! 

Það er mikið framundan hjá okkur í maí og krakkarnir byrjaðir að telja niður í spennandi daga!

12. maí verður hjóladagur í leikskólanum.  Þá mega börnin koma með hjólin sín í leikskólann.  Við munum rýma bílastæðið við leikskólann og krakkarnir fá að hjóla þar.  Að sjálfsögðu þurfa ALLIR að vera með hjálma!

16. maí verður sveitaferð að Bjarteyjarsandi.  Við förum með rútu og eyðum deginum sveitasælunni.

27. maí er síðasti foreldrasöngsalur þessarar annar.  Snillingarnir á Bergi ætla að troða upp.

31. maí er fyrirhugað að halda útskriftar- og sumarhátíð Akrasels. 

1. júní verður í fyrsta skipti haldið árgángamót allra leikskólanna á Akranesi.  Börnin á Bergi og Kletti ætla að bjóða öllum leikskólabörnum fæddum 2006 hingað í Akrasel og sprella eitthvað skemmtilegt saman.

Fullt af nýjum myndum í myndasafni!

 

meira...
6. apríl 2011 12:35

Bergið

Úpps!  Mars mánuður flaug framhjá okkur J  Það hefur aldeilis verið nóg um að vera og alltaf fjör hjá Bergbúum!  Veðrið í mars var þó ekki alveg eftir óskum og komu nokkrir daga sem við hreinlega ákváðum að vera innipúkar, okkur fannst snjórinn samt sem áður frábær og oft frekar aumir rassar eftir allar ferðirnar á rassaþotunum niður hólinn. 

Bolludaginn tókum við með trompi og borðuðum bollur nánast í öll mál!  Við bökuðum brauðbollur til að borða í nónhressingu og fengum fiskibollur og vatnsdeigsbollur í hádegismat.  Á öskudaginn saumuðu þau sem vildu öskudagspoka og komu okkur kennurunum skemmtilega á óvart með fínhreyfivinnu sinni!  Aðaldagurinn var þó án efa sjálfur öskudagurinn og mikil tilhlökkun í hópnum eftir þeim degi.  Bergbúar skelltu sér í búðir að syngja og fengu mikið hrós fyrir söng sinn.  Enda þaulæfðir söngvarar á ferð J  Eftir hádegi var síðan öskudagsball og kötturinn (poppið) sleginn úr tunnunni.  Mikið stuð. 

Eins og sjá má á myndunum okkar (http://akrasel.is/pages/myndasafn/berg-mars-april-2011/ ) er hvergi slegið slöku við á Bergi og endalaus ný verkefni sem bíða okkar.  Við höfum meðal annars verið að þæfa ull, sulla, leira úr jarðleir, byggja, smíða, mála, kríta og fleira og fleira.  

Nú er foreldraviðtölum lokið á Bergi og viljum við þakka foreldrum kærlega fyrir góð samtöl.  Í haust verður síðan aftur boðið upp á foreldraviðtöl. 

Ný stelpa hefur bæst í flotta barnahópinn okkar.  Hún heitir Rula og kemur frá Írak.  Rula er nýorðin 5 ára og var áður hjá okkur á Kletti.  Við bjóðum hana og fjölskyldu hennar að sjálfsögðu hjartanlega velkomna til okkar.

Föstudaginn 15. apríl verður dótadagur í Akraseli! 

Síðasta daginn fyrir páskafrí ætlum við að tapa okkur í páskastemmingu og klæða okkur í páskalitinn J Sem sagt; Gulur dagur 20. apríl!

Þriðjudaginn 26. apríl verður leikskólinn lokaður vegna skipulagsdags starfsfólks!

 

meira...
15. febrúar 2011 12:55
21. janúar 2011 12:04
13. desember 2010 02:53
2. desember 2010 12:36
11. nóvember 2010 10:19
29. október 2010 02:46
10. september 2010 02:44
24. júní 2010 02:21
 
Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | akrasel@akranes.is